Upplýsingar um liðaskiptingu
Keppninni er skipt í þrjár deildir
Leonard Hofstadter-deildin. Fyrir hádegi leysa keppendur mörg smá verkefni (sömu verkefni og í Sheldon Cooper-deildinni). Eftir hádegi leysa keppendur eitt stórt verkefni sem reynir á tæknilega færni, hugsanlega með notkun grafísks notendaviðmóts, gagnagrunns og vefforritunar. Keppendur hafa sveigjanleika við útfærslu verkefna í síðari hluta keppninnar.
Sheldon Cooper-deildin. Fyrir hádegi leysa keppendur mörg smá verkefni (sömu verkefni og í Leonard Hofstadter-deildinni). Eftir hádegi leysa keppendur fá en heldur stærri verkefni sem reyna á rökhugsun og útfærslu á lausnaraðferðum.
Howard Wolowitz-deildin er fyrir nemendur sem eru byrjendur en hafa áhuga á að kynna sér forritun. Aðstandendur keppninnar vilja fá sem flesta nemendur til að taka þátt í þessari deild, t.d. nemendur sem hófu nám í forritun nú í haust.
