Forritunarkeppnin
Forritunarkeppni framhaldsskólanna hefur verið haldin í fjölmörg ár og hefur ásókn í keppnina aukist ár frá ári enda til mikils að vinna.
Keppnin er ekki eingöngu ætluð þeim sem hafa mikla forritunarkunnáttu fyrir heldur fyrir alla þá sem hafa áhuga á forritun þrátt fyrir að hafa ekki lært það í framhaldsskóla.
Við hvetjum því alla til að koma og prófa enda er ekkert þátttökugjald og stemningin er gríðarlega góð hjá öllum keppendum.
Keppninni er skipt í þrjár deildir
Leonard Hofstadter-deildin. Fyrir hádegi leysa keppendur mörg smá verkefni (sömu verkefni og í Sheldon Cooper-deildinni). Eftir hádegi leysa keppendur eitt stórt verkefni sem reynir á tæknilega færni, hugsanlega með notkun grafísks notendaviðmóts, gagnagrunns og vefforritunar. Keppendur hafa sveigjanleika við útfærslu verkefna í síðari hluta keppninnar.
Sheldon Cooper-deildin. Fyrir hádegi leysa keppendur mörg smá verkefni (sömu verkefni og í Leonard Hofstadter-deildinni). Eftir hádegi leysa keppendur fá en heldur stærri verkefni sem reyna á rökhugsun og útfærslu á lausnaraðferðum.
Howard Wolowitz-deildin er fyrir nemendur sem eru byrjendur en hafa áhuga á að kynna sér forritun. Aðstandendur keppninnar vilja fá sem flesta nemendur til að taka þátt í þessari deild, t.d. nemendur sem hófu nám í forritun nú í haust.
