Nýherji
Nýherji er eitt öflugasta upplýsingatæknifyrirtæki landsins. Hjá Nýherja og dótturfélögum starfa samtals um 550 starfsmenn á Íslandi, í Danmörku og Svíþjóð. Nýherji var stofnaður árið 1992. Hlutabréf Nýherja eru skráð í OMX Kauphöll Íslands.
Nýherji annast sölu og tæknilega ráðgjöf á vél- og hugbúnaðarlausnum, hljóð- og myndlausnum, uppsetningu og rekstur upplýsingatæknilausna. Nýherji er einn helsti innflytjandi á raftækjum á landinu. Fyrirtækið leggur áherslu á gæðavörur frá heimsþekktum framleiðendum sem eru í fararbroddi á sínu sviði. Í dag flytur fyrirtækið t.a.m. inn vörur frá Lenovo, Sony, Canon og Bose.
Verslanir Nýherja má finna í Borgartúni 37, Kringlunni og í www.netverslun.is.
Dótturfélög Nýherja eru:
- TM Software sem sérhæfir sig í ráðgjöf, þjónustu og hugbúnaðarþróun fyrir alla geira atvinnulífsins.
- Applicon sem sérhæfir sig í innleiðingu, ráðgjöf, þjónustu og þróun á lausnum fyrir SAP-, Vigor-, og Microsoft hugbúnað.
- Klak – Nýsköpunarmiðstöð atvinnulífsins sem leiðir saman frumkvöðla, fyrirtæki og háskóla á Íslandi til þess að skapa verðmæti í krafti nýsköpunar
Dótturfélög Nýherja erlendis eru Applicon í Danmörku og Svíþjóð og Dansupport í Danmörku.
